Fyrirmyndir, jarðvegskortagerð

Fyrirmyndirnar eru Ástralía, Nýja-Sjáland, Danmörk og Skotland. Megintilgangurinn er sá að bera kennsl á hvaða aðferðir hafa reynst þeim best og þá að hvaða leyti við gætum mögulega nýtt okkur þá reynslu? Þetta stutta yfirlit eru glósur og á meira skylt við hugarflug og grunn að innslagi til frekari umræðna um mögulegar aðferðir við kortlagningu sem þessa. Frjálsleg yfirferð og túlkun á aðferðum þessara fjögurra fyrirmynda eru hér gerð skil ásamt tillögum að næstu skrefum.

Flæðiritið sem velja má fyrir í valmynd sýnir röð aðgerða þar sem hægt er að smella á boxin og sjá nánar hvað tiltekin framkvæmd gerir með skýringarmyndum og urls. Heimildirnar eru svo helsta kveikjan að neðangreindu, einnig má finna fáein fræðslumyndbönd sem vert er að skoða sem útskýra DSM með ágætum.

Fyrirmyndirnar eiga það allar sameiginlegt að leggja megináherslu á stafræna jarðvegskortagerð (e. Digital Soil Mapping, DSM) á síðustu árum, þrátt fyrir að hafa búið yfir og haft með ítarlegum hætti kortlagt jarðvegsgerðir með hefðbundnum aðferðum áður fyrr. Ástralía fór nær alfarið leið stafrænnar jarðvegskortlagningar og er áherslan lögð á samfelld spákort, tölfræðilíkön og megindlegt (quantitative) óvissumat.

Stafræn jarðvegskortagerð (DSM)?

Stafræn jarðvegskortagerð þ.e hugmyndafræði hennar er í grunninn afar einföld (flókin framkvæmd). Jarðvegssýni eru tekin á völdum staðsetningum, eðlis- og efnaeiginleikum þeirra gerð skil á rannsóknarstofu. Þar næst er tölvulíkönum eins og t.d vélnámi og landfræðileg tölfræðilíkön nýtt til þess að finna og meta hvort, hvar, hvers vegna og hversu sterk tengsl séu á milli mælinga og vettvangsathugunar. Útkoman er sú að:

  • Niðurstöðurnar nýtast ekki aðeins til þess að spá fyrir um jarðvegsgerðir og eiginleika með rekjanlegum og staðgreinalegum hætti.
  • Heldur verður til kort/spálíkan um eiginleika jarðvegs og flokkunar þar sem engin sýni og eða vettvangsathugun hefur farið fram.

Líkönin byggja á svokölluðum skýribreytum (e. covariates) sem geta meðal annars verið; landhalli, hallastefna, yfirborðsrennsli, gróðurfar, skurðanet, berggrunnur o.fl. Það sem gerir DSM að sérlega áhugverðari aðferð er þetta innbyggða óvissumat. Við fáum ekki aðeins spágildi fyrir jarðvegseiginleika í hverri myndeiningu, heldur reiknar líkanið einnig fyrir spönn spábila (t.d. 90% öryggisbil) og afmarkar þannig „Area of Applicability“. (sjá orðalista) Þannig sjáum við, með landfræðilegum hætti hvar óvissan er mest og þá um leið hvar ný sýnataka, skilar mestum ávinningi. Þannig bætum við spálíkanið okkar þegar fram í sækir.

Fyrirmyndir vs Ísland og hugsanlegur kostnaður /km²

Flatarmál Íslands er um 103.000 km². Til samanburðar er flatarmál Danmerkur (án Grænlands og Færeyja) 42.957 km², eða um 42% af flatarmáli Íslands, og Skotland er 77.910 km², sem samsvarar um 76%. Ísland er hins vegar aðeins um 38% af flatarmáli Nýja-Sjálands, sem er 268.107 km², og rétt 1,3% af flatarmáli Ástralíu, sem er 7.688.287 km².

Stór hluti Íslands er ógróið land. Landnýting, byggð, landbúnaður, iðnaður, landgræðsla og skógrækt eru að langmestu leyti bundin við láglendið (0–300 m y.s.). Af þeim sökum er hvorki skynsamlegt né hagkvæmt að kortleggja allt landið með sömu nákvæmni.

Það kostaði 29.000 - 42.000 aumar ísl kr./km² að kortleggja jarðvegsgerðir á Nýja-Sjálandi. Ef við gefum okkur sama kostnað hér við land þá kostar;

  • Jarðvegskort fyrir Ísland 103.000 km² 3.0 - 4.3 milljarða kr.
  • Láglendi 0–300 m.y.s 29.500 km² eða 28,6% af heildarflatarmáli 856 - 1.239 millj kr.

Dæmið sýnir meðal annars fram á mikilvægi þess að leggja áherslu á áfangaskipta kortlagningu, mögulega ræðst svo skiptingin af því hvar þörfin er svo mest, fjármagni, fyrirliggjandi gögnum ásamt víðtæku og þverfaglegu samstarfi hvar svo sem það fæst.

Ástralía: Samfelld spálíkön og óvissumat

Verkefnið og aðferðir (SLGA - Soil and Landscape Grid of Australia) virðast falla einna best að DSM fyrir Ísland af þeim fyrirmyndum sem hér eru skoðaðar. Jarðvegskortið byggir á samfelldum spágildum með óvissumati í 90 m landfræðilegri upplausn. Líkönin spá fyrir um eðlis- og efnaeiginleika jarðvegs á skilgreindum jarðvegsdýptum allt niður á 2 metra dýpi. Fyrir Ísland væri eftirsóknarvert að vinna að kortlagningu í 2 m upplausn en grunngögn eins og ÍslandsDEM 2 m bjóða upp á slíkt. Það þarf hins vegar að rannsaka nánar með líkanagerð, prófunum o.fl til að fá úr slíku skorið, spurningum eins og; hver getur landfræðileg upplausn á hverja myndeiningu verið miðað við þær skýribreytur sem okkur standa til boða og á hvaða mælikvarða skal jarðvegskortið enda á að vera í? Svarið við þessu getur alveg verið eitthvað sem við ákveðum, án þess að taka tillit til fyrirliggjandi gagna, líkanagerðar o.fl. Góður undirbúningur er mögulega vænlegri kostur við ákvarðanir sem þessar.

Nýja-Sjáland: Miðlægur gagnagrunnur, allt á einum stað!!

S-map á Nýja-Sjálandi sýnir fram á mikilvægi þess að hanna og smíða miðlægan (e. relational database) sem samræmir og tengir saman eldri jarðvegssnið, stafrænar athuganir á vettvangi, sýnaniðurstöður og gæðamat í sama landfræðilega gagnagrunninum. S-map hefur verið fjármagnað í áföngum og er gagnagrunnurinn ásamt þessari áfangaskiptu framvindu fyrirmynd sem gæti verið gagnlegt að skoða nánar.

Danmörk: Samspil fjarkönnunar og vettvangsrannsókna

Danir hafa kortlagt jarðveg landsins með kerfisbundnum hætti frá árinu 1888. Kortlagningin byggist á vettvangsrannsóknum þar sem jarðvegsgerð er að jafnaði skráð með 100–200 metra millibili. Á árunum 1975–1980 var ræktað land jafnframt flokkað eftir kornastærð, innihaldi lífrænna efna og kalkmagni á grundvelli jarðvegssýna frá um 35.000 stöðum.

Nýjustu jarðvegskortin eru í 10 m upplausn og byggja meðal annars á gervitunglagögnum frá Sentinel-1 og Sentinel-2. Rúmlega 50.000 jarðvegssýni eru nýtt til að þjálfa líkanagerð. Reynsla þeirra sýnir fram á mikilvægi þess að byggja fjarkönnun og stafræna jarðvegskortlagningu á umfangsmiklum vettvangsmælingum.

Skotland: Kolefnisforði og langtímavöktun

Skotar hafa lagt sérstaka áherslu á kortlagningu lífræns jarðvegs (mýra- og móajarðvegs) og kolefnisforða, sem fellur vel að íslenskum þörfum, ekki síst vegna alþjóðlegra skuldbindinga í loftslagsbókhaldi (LULUCF). Fast net sýnatöku þjónar sem vöktun til að fylgjast með breytingum á kolefnisforða og ástandi jarðvegs. Þetta er mögulega eitt af því sem ætti að skoða nánar fyrir Ísland?

Af hverju vatnasvið sem grunneining?

Ein tillaga er að nota vatnasvið (e. catchments) sem grunneiningar við vatnafræðilega úrvinnslu fyrir jarðvegskortlagningu á Íslandi. Ólíkt ferhyrndum vinnslusvæðum (e. raster grid) fylgja vatnasvið náttúrulegum rennslisleiðum. Ef útreikningar eru afmarkaðir við ferhyrnd svæði án tillits til aðrennslis getur það skekkt niðurstöður fyrir breytur á borð við uppsafnað rennsli (finn ekki betra orð) og bleytustuðul (e. Topographic Wetness Index, TWI).

Með því að afmarka einingu til að vinna frekar með út frá vatnafræðilega leiðréttu hæðarlíkani og tryggja að allt aðrennsli sé tekið með má draga úr slíkum skekkjum. Vatnasvið nýtast einnig við svokallaða krossprófun (e. spatial cross-validation) spálíkana. Þá eru gögn frá ákveðnum vatnasviðum undanskilin þjálfun og notuð til að meta spánákvæmni á óþekktum svæðum. Að prófun lokinni má þjálfa heildarlíkan með öllum tiltækum gögnum.

Vatnasvið henta því bæði til vatnafræðilegrar úrvinnslu og mats á spágetu jarðvegskorts.

Vatnasvið þurfa þó ekki að vera grunneiningar allrar kortlagningar, enda ræðst jarðvegsgerð einnig af stöðu grunnvatns, áfoki, loftslagi og annarra álíka þátta sem eru ekki einskorðuð við mörk vatnasviða.

Tillaga, fjórir áfangar

Gögn sem geta mögulega nýst við jarðvegskortlagningu eru meðal annars ÍslandsDEM (2 m), vistgerðakort (1:25.000), veðurfarsgögn, skurðir, gervitunglagögn og svo mætti lengi telja.

1. Gagnasöfnun, hönnun og smíði á miðlægum landfræðilegum gagnagrunni

Að safna saman fyrirliggjandi jarðvegsgögnum úr eldri rannsóknum, sýnatökum og jarðvegssniðum. Gögnin verði samræmd og skráð í miðlægan landfræðilegan gagnagrunn (GIS) ásamt upplýsingum um landslag, vatnafar, veðurfar, berggrunn, gróðurfar og landnýtingu.

Jafnframt verði uppruni gagnanna, nákvæmni, landfræðileg upplausn og tímasetningar mælinga skráð. Ekki verði ákveðið fyrirfram hvaða reitastærð skuli nota við kortlagninguna, heldur verði það metið í tilraunaverkefninu.

2. Tilraunaverkefni á völdum vatnasviðum

Velja skal eitt eða fleiri vatnasvið sem endurspegla fjölbreyttar jarðvegs- og umhverfisaðstæður. Þar verði jarðvegur greindur/túlkaður með jarðvegssniðum, sýnatöku og öðrum vettvangsmælingum. Jafnframt verði kannað hvernig jarðvegsgerð og eiginleikar jarðvegs tengjast berggrunni, áfoki, gróðurfari, vatnafari, landslagi, loftslagi og landnýtingu og margt fleira?

Niðurstöður verði notaðar til að þróa og bera saman mismunandi spálíkön. Sérstaklega verði kannað hvaða landfræðileg upplausn (e. spatial resolution) henti best. Til dæmis mætti bera saman 10, 20 og 50 metra reitastærðir og meta áhrif þeirra á spánákvæmni, gæði niðurstaðna, vinnslutíma og kostnað. Endanleg upplausn verði ákveðin út frá slíkum samanburði.

3. Áfangaskipt jarðvegskortlagning láglendis

Að loknu tilraunaverkefni verði hafin kerfisbundin kortlagning láglendis. Vinna mætti eftir hæðarbeltum, til dæmis 0 - 200 og 200 - 400 metrum yfir sjávarmáli, en endanleg afmörkun tæki mið af niðurstöðum tilraunaverkefnis.

Kortlagningin byggist á samspili vettvangsmælinga, landupplýsinga og spálíkana. Samhliða verði gerð óvissukort sem sýna hvar niðurstöðurnar eru síður áreiðanlegar og hvar forsendur spálíkananna eiga við. Þannig má greina hvar frekari jarðvegssýna er þörf og beina sýnatöku að þeim svæðum þar sem nýjar mælingar eru líklegastar til að bæta nákvæmni kortanna.

4. Kortlagning hálendis og langtímavöktun

Í framhaldinu verði ráðist í kortlagningu hálendisins. Landfræðileg upplausn og nákvæmni kortanna taki mið af aðstæðum, fyrirliggjandi gögnum og þörfum notenda.

Jafnframt verði komið á fót varanlegu vöktunarneti, meðal annars að skoskri fyrirmynd, þar sem jarðvegur er rannsakaður reglulega á föstum mælistöðum. Þannig verði hægt að fylgjast með langtímabreytingum á eiginleikum jarðvegs, kolefnisforða, jarðvegsrofi og ástandi jarðvegs.

Markmiðið er að byggja upp samræmdan og áreiðanlegan gagnagrunn um jarðveg Íslands sem nýtist við rannsóknir, skipulag og landnýtingu, náttúruvernd og loftslagsbókhald.

Samantekt

Samanburður við önnur lönd og fyrirliggjandi aðferðir og tækni styðja þá tillögu að hefja stafræna jarðvegskortlagningu á Íslandi. Stöðluð jarðvegssýnataka og vandaðar vettvangsmælingar yrðu undirstaða kortlagningar, en fyrirliggjandi landupplýsingar og vélnámslíkön svo nýtt til að áætla jarðvegseiginleika á stærri svæðum.

Næsta skref væri afmarkað tilraunaverkefni á völdum vatnasviðum, þar sem metin yrði þörf fyrir sýnatöku, kostnað við kortlagningu og hvaða landfræðilegu upplausn (e. spatial resolution) gögn og aðferðir styðja. Jafnframt yrði lagt mat á nákvæmni og áreiðanleika niðurstaðna áður en ráðist yrði í umfangsmeiri kortlagningu.

Myndbönd

The Soil and Landscape Grid of Australia – CSIRO. Introduces Australia's nationwide digital soil mapping and how soil measurements, spatial data and predictive models are used together.
Digital Soil Mapping – FAO. An introduction to digital soil mapping, its main methods and how the results are used.
Module 1: Introduction to Digital Soil Mapping – FAO. Covers the basics of digital soil mapping and how soil measurements relate to spatial covariates.
Basic Hydrologic Analysis in ArcGIS Pro – Jenness Enterprises. Explains how elevation models are used to calculate flow direction, flow accumulation, watersheds and the topographic wetness index (TWI).
Hydrology in ArcGIS Pro, Lab Exercise 5: Generating an Accurate Watershed – Jenness Enterprises. Shows how watersheds are delineated from an elevation model and flow paths.
How to Create Topographic Wetness Index (TWI) in ArcGIS Pro – NGEOSPATIAL SOLUTION. A hands-on tutorial on calculating the topographic wetness index from an elevation model, slope and flow accumulation.
  • Source data
  • Derived data
  • Operation
  • Result
  • New samples return
  • Has a figure
Terrain and hydrologyOther covariatesSoil observationsModelling and validationMaps and follow-upÍslandsDEMElevation model, 2 mCondition the DEMBreach, keep real hollowsFlow directionD8 and MFD comparedDelineate catchmentsFrom flow directionCatchmentsPolygons with an IDFlow accumulation, TWIRun catchment by catchmentFlow covariatesAccumulation and TWITerrain derivativesSlope, curvature, aspectTerrain covariatesLocal shape of the landHabitat type mapVistgerðir, 1:25,000Geological mapBedrock, 1:600,000Climate gridsPrecipitation, temperatureSentinel-2 imageryCloud-free compositesDrainage ditchesMapped ditch networkRasterize and encodePolygons to the 20 m gridProject and resampleTo ISN93, 20 mVegetation indicesNDVI, seasonal summariesDistance to ditchesMetres to nearest ditchCovariate stackOne aligned grid, 20 m, EPSG:3057Legacy soil profilesEarlier surveysNew field samplesPits and undisturbed coresLaboratory analysisCarbon, pH, texture, densityHarmonise and checkDepths, units, methodsSoil point data setValues per depth layerExtract at pointsCovariates at each sampleTraining tableSamples, covariates, catchment IDCross-validateWhole catchments held outAccuracy reportError, bias, interval coverageFit the chosen modelQuantile regression forestFitted modelOne model for the countryPredict to the gridEvery 20 m cell, by depthArea of applicabilityWhere the model extrapolatesSoil property mapsPer property and depthUncertainty mapsWidth of the 90% intervalApplicability maskInside or outsidePlan new samplingWhere knowledge is weakestPublish and versionMaps, metadata, change log
Rounded boxes are data and square boxes are operations. Catchments frame the flow calculation and the cross-validation; the model itself is fitted once for the whole country.

Explanatory figures

    Kortið er að hlaðast…

    Orðalisti

    Stafræn jarðvegskortagerð (DSM – Digital Soil Mapping):
    Aðferðafræði þar sem niðurstöður jarðvegssýna eru tengdar við landupplýsingar og tölfræði- eða vélnámslíkön notuð til að spá fyrir um eiginleika jarðvegs ásamt óvissumati.
    Skýribreyta (Covariate):
    Landfræðileg breyta (t.d. landhalli, bleytustuðull, úrkoma, gróður eða berggrunnur) sem notuð er í líkani til að skýra og spá fyrir um eiginleika jarðvegs.
    Spálíkan (Predictive model):
    Tölfræði- eða vélnámslíkan sem greinir tengsl milli mældra jarðvegseiginleika og skýribreyta.
    Random Forest:
    Vélnám sem sameinar niðurstöður frá mörgum ákvörðunarvörðum til að ná fram nákvæmari og stöðugri spá.
    Quantile Regression Forest:
    Útfærsla á Random Forest sem metur ekki aðeins meðalgildi spár heldur alla dreifinguna, sem gerir kleift að reikna spábil (t.d. 90% öryggisbil) og meta óvissu í hverri myndeiningu.
    Ákvörðunarvarða (Decision tree):
    Tillaga að íslensku heiti; vísar veginn að niðurstöðu líkt og varða í landslagi.
    Area of Applicability (AOA) og applicability mask:
    Afmarkar hvar umhverfisskilyrði á kortasvæði eru sambærileg við þjálfunargögn líkansins og hvar líkanið teygir sig út fyrir þekkt mörk.
    Rastagögn og myndeining (Raster / pixel):
    Stafræn landupplýsingagögn sem sett eru fram í reglulegu neti ferhyrndra myndeininga.
    Landfræðileg upplausn (Spatial resolution):
    Stærð hverrar myndeiningar á jörðu niðri, t.d. 20 × 20 metrar.
    Mælikvarði (Map scale):
    Hlutfall milli fjarlægðar á korti og raunverulegrar fjarlægðar í landi (t.d. 1:50.000).
    Pedotransfer function (PTF):
    Stærðfræðilegt spáfall sem áætlar eiginleika jarðvegs sem dýrt er að mæla beint (t.d. vatnsheldni) út frá einfaldari mælingum.
    Bleytustuðull (Topographic Wetness Index, TWI):
    Vísitala reiknuð út frá aðrennslissvæði og landhalla sem lýsir hvar vatn safnast fyrir í landslaginu.
    Vatnasvið (Catchment):
    Náttúrulegt landsvæði þar sem allt yfirborðsvatn rennur að sama útfalli.
    Landfræðileg krossprófun (Spatial cross-validation):
    Prófunaraðferð þar sem gögnum er skipt í landfræðilega aðskildar einingar (t.d. heil vatnasvið) til að fá raunhæft mat á spánákvæmni líkans á óþekktum svæðum.

    Heimildir

    Adhikari, K., Bou Kheir, R., Greve, M. B., Bøcher, P. K., Malone, B. P., Minasny, B., McBratney, A. B., & Greve, M. H. (2013). High-resolution 3-D mapping of soil texture in Denmark. Soil Science Society of America Journal, 77(3), 860–876.

    Aitkenhead, M. J., & Coull, M. C. (2016). Mapping soil carbon stocks across Scotland using a neural network model. Geoderma, 262, 187–198.

    Aitkenhead, M. J., & Coull, M. C. (2020). Mapping soil profile depth, bulk density and carbon stock in Scotland using remote sensing and spatial covariates. European Journal of Soil Science, 71(4), 553–567.

    Cavazzi, S., Corstanje, R., Mayr, T., Hannam, J., & Fealy, R. (2013). Are fine resolution digital elevation models always the best choice in digital soil mapping?. Geoderma, 195–196, 111–121.

    Geological Survey of Denmark and Greenland (GEUS). (n.d.). Geologisk jordartskortlægning af Danmark.

    Grundy, M. J., et al. (2015). Soil and landscape grid of Australia. Soil Research, 53(8), 835–844.

    Hengl, T. (2006). Finding the right pixel size. Computers & Geosciences, 32(9), 1283–1298.

    Lilburne, L. R., et al. (2012). Soil and informatics science combine to develop S-map: A new generation soil information system for New Zealand. Geoderma, 170, 232–238.

    Lilly, A., Bell, J. S., Hudson, G., Nolan, A. J., & Towers, W. (2010). National soil inventory of Scotland (NSIS_1): Site location, sampling and profile description protocols (1978–1988). Macaulay Institute.

    Malone, B. P., Searle, R., Stenson, M., McJannet, D., Zund, P., Román Dobarco, M., Wadoux, A. M. J.-C., Minasny, B., McBratney, A., & Grundy, M. (2025). Update and expansion of the soil and landscape grid of Australia. Geoderma, 455, 117226.

    Manaaki Whenua – Landcare Research. (2024). Major update to S-map Online released.

    Manaaki Whenua – Landcare Research. (2025). Broadening our horizons: S-map coverage expands again.

    New Zealand Soils Portal. (2026). S-map updates across Aotearoa for 2026.

    Manaaki Whenua – Landcare Research. (n.d.). S-map Online: Release notes.

    McBratney, A. B., Mendonça Santos, M. L., & Minasny, B. (2003). On digital soil mapping. Geoderma, 117(1–2), 3–52.

    Møller, A. B., Nyborg, L., Grogan, K., Druce, D., Svane, S. F., Greve, M. B., Gutierrez, S., Styczen, M., Greve, M. H., Knudsen, L., & Beucher, A. (2025). High-resolution 3D soil texture mapping in Denmark using satellite time series and bare soil composites. Advances in Agronomy, 194, 133–186.

    Poggio, L., & Gimona, A. (2014). National scale 3D modelling of soil organic carbon stocks with uncertainty propagation—An example from Scotland. Geoderma, 232–234, 284–299.

    Roberts, D. R., et al. (2017). Cross-validation strategies for data with temporal, spatial, hierarchical, or phylogenetic structure. Ecography, 40(8), 913–929.

    Scotland’s Soils. (n.d.). National soil map of Scotland.

    Scotland’s Soils. (n.d.). National Soil Inventory of Scotland (NSIS 1978–88).

    Searle, R. (2021). Australian Soil Classification Map [Data set]. Terrestrial Ecosystem Research Network.

    Soil Survey of Scotland Staff. (1981). National Soil Map of Scotland (Version 1.4) [Data set]. Zenodo.

    error: :(