# Jarðvegskort

- Link: https://jardvegskort.logs.is/
- Published: 2026-11-24T20:13:23+00:00
- Author: laverne

[Fyrirmyndir](https://jardvegskort.logs.is/#fyrirmyndir)[Stafræn kortagerð](https://jardvegskort.logs.is/#dsm)
[Kostnaður](https://jardvegskort.logs.is/#kostnadur)[Löndin fjögur](https://jardvegskort.logs.is/#lond)
[Vatnasvið](https://jardvegskort.logs.is/#vatnasvid)[Tillaga](https://jardvegskort.logs.is/#tillaga)
[Samantekt](https://jardvegskort.logs.is/#samantekt)[Myndbönd](https://jardvegskort.logs.is/#myndbond)
[Flæðirit](https://jardvegskort.logs.is/#flow)[Ýmir LbhÍ](https://jardvegskort.logs.is/#vefsja)
[Orðalisti](https://jardvegskort.logs.is/#ordalisti)[Heimildir](https://jardvegskort.logs.is/#heimildir)

# Fyrirmyndir, jarðvegskortagerð

Fyrirmyndirnar eru Ástralía, Nýja-Sjáland, Danmörk og Skotland. Megintilgangurinn
er sá að bera kennsl á hvaða aðferðir hafa reynst þeim best og þá að hvaða leyti
við gætum mögulega nýtt okkur þá reynslu? Þetta stutta yfirlit eru glósur og á meira
skylt við hugarflug og grunn að innslagi til frekari umræðna um mögulegar aðferðir
við kortlagningu sem þessa. Frjálsleg yfirferð og túlkun á aðferðum þessara fjögurra
fyrirmynda eru hér gerð skil ásamt tillögum að næstu skrefum.

Flæðiritið sem velja má fyrir í valmynd sýnir röð aðgerða þar sem hægt er að smella
á boxin og sjá nánar hvað tiltekin framkvæmd gerir með skýringarmyndum og urls. 
Heimildirnar eru svo helsta kveikjan að neðangreindu, einnig má finna fáein fræðslumyndbönd
sem vert er að skoða sem útskýra DSM með ágætum.

Fyrirmyndirnar eiga það allar sameiginlegt að leggja megináherslu á stafræna jarðvegskortagerð(
e. Digital Soil Mapping, DSM) á síðustu árum, þrátt fyrir að hafa búið yfir og haft
með ítarlegum hætti kortlagt jarðvegsgerðir með hefðbundnum aðferðum áður fyrr. 
Ástralía fór nær alfarið leið stafrænnar jarðvegskortlagningar og er áherslan lögð
á samfelld spákort, tölfræðilíkön og megindlegt (quantitative) óvissumat.

## Stafræn jarðvegskortagerð (DSM)?

Stafræn jarðvegskortagerð þ.e hugmyndafræði hennar er í grunninn afar einföld (flókin
framkvæmd). Jarðvegssýni eru tekin á völdum staðsetningum, eðlis- og efnaeiginleikum
þeirra gerð skil á rannsóknarstofu. Þar næst er tölvulíkönum eins og t.d vélnámi
og landfræðileg tölfræðilíkön nýtt til þess að finna og meta hvort, hvar, hvers 
vegna og hversu sterk tengsl séu á milli mælinga og vettvangsathugunar. Útkoman 
er sú að:

 * Niðurstöðurnar nýtast ekki aðeins til þess að spá fyrir um jarðvegsgerðir og 
   eiginleika með rekjanlegum og staðgreinalegum hætti.
 * Heldur verður til kort/spálíkan um eiginleika jarðvegs og flokkunar þar sem engin
   sýni og eða vettvangsathugun hefur farið fram.

Líkönin byggja á svokölluðum skýribreytum (e. covariates) sem geta meðal annars 
verið; landhalli, hallastefna, yfirborðsrennsli, gróðurfar, skurðanet, berggrunnur
o.fl. Það sem gerir DSM að sérlega áhugverðari aðferð er þetta innbyggða óvissumat.
Við fáum ekki aðeins spágildi fyrir jarðvegseiginleika í hverri myndeiningu, heldur
reiknar líkanið einnig fyrir spönn spábila (t.d. 90% öryggisbil) og afmarkar þannig„
Area of Applicability“. (sjá orðalista) Þannig sjáum við, með landfræðilegum hætti
hvar óvissan er mest og þá um leið hvar ný sýnataka, skilar mestum ávinningi. Þannig
bætum við spálíkanið okkar þegar fram í sækir.

## Fyrirmyndir vs Ísland og hugsanlegur kostnaður /km²

Flatarmál Íslands er um 103.000 km². Til samanburðar er flatarmál Danmerkur (án 
Grænlands og Færeyja) 42.957 km², eða um 42% af flatarmáli Íslands, og Skotland 
er 77.910 km², sem samsvarar um 76%. Ísland er hins vegar aðeins um 38% af flatarmáli
Nýja-Sjálands, sem er 268.107 km², og rétt 1,3% af flatarmáli Ástralíu, sem er 7.688.287
km².

Stór hluti Íslands er ógróið land. Landnýting, byggð, landbúnaður, iðnaður, landgræðsla
og skógrækt eru að langmestu leyti bundin við láglendið (0–300 m y.s.). Af þeim 
sökum er hvorki skynsamlegt né hagkvæmt að kortleggja allt landið með sömu nákvæmni.

Það kostaði 29.000 - 42.000 aumar ísl kr./km² að kortleggja jarðvegsgerðir á Nýja-
Sjálandi. Ef við gefum okkur sama kostnað hér við land þá kostar;

 * Jarðvegskort fyrir Ísland 103.000 km² 3.0 - 4.3 milljarða kr.
 * Láglendi 0–300 m.y.s 29.500 km² eða 28,6% af heildarflatarmáli 856 - 1.239 millj
   kr.

Dæmið sýnir meðal annars fram á mikilvægi þess að leggja áherslu á áfangaskipta 
kortlagningu, mögulega ræðst svo skiptingin af því hvar þörfin er svo mest, fjármagni,
fyrirliggjandi gögnum ásamt víðtæku og þverfaglegu samstarfi hvar svo sem það fæst.

### Ástralía: Samfelld spálíkön og óvissumat

Verkefnið og aðferðir (SLGA - Soil and Landscape Grid of Australia) virðast falla
einna best að DSM fyrir Ísland af þeim fyrirmyndum sem hér eru skoðaðar. Jarðvegskortið
byggir á samfelldum spágildum með óvissumati í 90 m landfræðilegri upplausn. Líkönin
spá fyrir um eðlis- og efnaeiginleika jarðvegs á skilgreindum jarðvegsdýptum allt
niður á 2 metra dýpi. Fyrir Ísland væri eftirsóknarvert að vinna að kortlagningu
í 2 m upplausn en grunngögn eins og ÍslandsDEM 2 m bjóða upp á slíkt. Það þarf hins
vegar að rannsaka nánar með líkanagerð, prófunum o.fl til að fá úr slíku skorið,
spurningum eins og; hver getur landfræðileg upplausn á hverja myndeiningu verið 
miðað við þær skýribreytur sem okkur standa til boða og á hvaða mælikvarða skal 
jarðvegskortið enda á að vera í? Svarið við þessu getur alveg verið eitthvað sem
við ákveðum, án þess að taka tillit til fyrirliggjandi gagna, líkanagerðar o.fl.
Góður undirbúningur er mögulega vænlegri kostur við ákvarðanir sem þessar.

### Nýja-Sjáland: Miðlægur gagnagrunnur, allt á einum stað!!

S-map á Nýja-Sjálandi sýnir fram á mikilvægi þess að hanna og smíða miðlægan (e.
relational database) sem samræmir og tengir saman eldri jarðvegssnið, stafrænar 
athuganir á vettvangi, sýnaniðurstöður og gæðamat í sama landfræðilega gagnagrunninum.
S-map hefur verið fjármagnað í áföngum og er gagnagrunnurinn ásamt þessari áfangaskiptu
framvindu fyrirmynd sem gæti verið gagnlegt að skoða nánar.

### Danmörk: Samspil fjarkönnunar og vettvangsrannsókna

Danir hafa kortlagt jarðveg landsins með kerfisbundnum hætti frá árinu 1888. Kortlagningin
byggist á vettvangsrannsóknum þar sem jarðvegsgerð er að jafnaði skráð með 100–200
metra millibili. Á árunum 1975–1980 var ræktað land jafnframt flokkað eftir kornastærð,
innihaldi lífrænna efna og kalkmagni á grundvelli jarðvegssýna frá um 35.000 stöðum.

Nýjustu jarðvegskortin eru í 10 m upplausn og byggja meðal annars á gervitunglagögnum
frá Sentinel-1 og Sentinel-2. Rúmlega 50.000 jarðvegssýni eru nýtt til að þjálfa
líkanagerð. Reynsla þeirra sýnir fram á mikilvægi þess að byggja fjarkönnun og stafræna
jarðvegskortlagningu á umfangsmiklum vettvangsmælingum.

### Skotland: Kolefnisforði og langtímavöktun

Skotar hafa lagt sérstaka áherslu á kortlagningu lífræns jarðvegs (mýra- og móajarðvegs)
og kolefnisforða, sem fellur vel að íslenskum þörfum, ekki síst vegna alþjóðlegra
skuldbindinga í loftslagsbókhaldi (LULUCF). Fast net sýnatöku þjónar sem vöktun 
til að fylgjast með breytingum á kolefnisforða og ástandi jarðvegs. Þetta er mögulega
eitt af því sem ætti að skoða nánar fyrir Ísland?

## Af hverju vatnasvið sem grunneining?

Ein tillaga er að nota vatnasvið (e. catchments) sem grunneiningar við vatnafræðilega
úrvinnslu fyrir jarðvegskortlagningu á Íslandi. Ólíkt ferhyrndum vinnslusvæðum (
e. raster grid) fylgja vatnasvið náttúrulegum rennslisleiðum. Ef útreikningar eru
afmarkaðir við ferhyrnd svæði án tillits til aðrennslis getur það skekkt niðurstöður
fyrir breytur á borð við uppsafnað rennsli (finn ekki betra orð) og bleytustuðul(
e. Topographic Wetness Index, TWI).

Með því að afmarka einingu til að vinna frekar með út frá vatnafræðilega leiðréttu
hæðarlíkani og tryggja að allt aðrennsli sé tekið með má draga úr slíkum skekkjum.
Vatnasvið nýtast einnig við svokallaða krossprófun (e. spatial cross-validation)
spálíkana. Þá eru gögn frá ákveðnum vatnasviðum undanskilin þjálfun og notuð til
að meta spánákvæmni á óþekktum svæðum. Að prófun lokinni má þjálfa heildarlíkan 
með öllum tiltækum gögnum.

Vatnasvið henta því bæði til vatnafræðilegrar úrvinnslu og mats á spágetu jarðvegskorts.

Vatnasvið þurfa þó ekki að vera grunneiningar allrar kortlagningar, enda ræðst jarðvegsgerð
einnig af stöðu grunnvatns, áfoki, loftslagi og annarra álíka þátta sem eru ekki
einskorðuð við mörk vatnasviða.

## Tillaga, fjórir áfangar

Gögn sem geta mögulega nýst við jarðvegskortlagningu eru meðal annars ÍslandsDEM(
2 m), vistgerðakort (1:25.000), veðurfarsgögn, skurðir, gervitunglagögn og svo mætti
lengi telja.

### 1. Gagnasöfnun, hönnun og smíði á miðlægum landfræðilegum gagnagrunni

Að safna saman fyrirliggjandi jarðvegsgögnum úr eldri rannsóknum, sýnatökum og jarðvegssniðum.
Gögnin verði samræmd og skráð í miðlægan landfræðilegan gagnagrunn (GIS) ásamt upplýsingum
um landslag, vatnafar, veðurfar, berggrunn, gróðurfar og landnýtingu.

Jafnframt verði uppruni gagnanna, nákvæmni, landfræðileg upplausn og tímasetningar
mælinga skráð. Ekki verði ákveðið fyrirfram hvaða reitastærð skuli nota við kortlagninguna,
heldur verði það metið í tilraunaverkefninu.

### 2. Tilraunaverkefni á völdum vatnasviðum

Velja skal eitt eða fleiri vatnasvið sem endurspegla fjölbreyttar jarðvegs- og umhverfisaðstæður.
Þar verði jarðvegur greindur/túlkaður með jarðvegssniðum, sýnatöku og öðrum vettvangsmælingum.
Jafnframt verði kannað hvernig jarðvegsgerð og eiginleikar jarðvegs tengjast berggrunni,
áfoki, gróðurfari, vatnafari, landslagi, loftslagi og landnýtingu og margt fleira?

Niðurstöður verði notaðar til að þróa og bera saman mismunandi spálíkön. Sérstaklega
verði kannað hvaða landfræðileg upplausn (e. spatial resolution) henti best. Til
dæmis mætti bera saman 10, 20 og 50 metra reitastærðir og meta áhrif þeirra á spánákvæmni,
gæði niðurstaðna, vinnslutíma og kostnað. Endanleg upplausn verði ákveðin út frá
slíkum samanburði.

### 3. Áfangaskipt jarðvegskortlagning láglendis

Að loknu tilraunaverkefni verði hafin kerfisbundin kortlagning láglendis. Vinna 
mætti eftir hæðarbeltum, til dæmis 0 - 200 og 200 - 400 metrum yfir sjávarmáli, 
en endanleg afmörkun tæki mið af niðurstöðum tilraunaverkefnis.

Kortlagningin byggist á samspili vettvangsmælinga, landupplýsinga og spálíkana. 
Samhliða verði gerð óvissukort sem sýna hvar niðurstöðurnar eru síður áreiðanlegar
og hvar forsendur spálíkananna eiga við. Þannig má greina hvar frekari jarðvegssýna
er þörf og beina sýnatöku að þeim svæðum þar sem nýjar mælingar eru líklegastar 
til að bæta nákvæmni kortanna.

### 4. Kortlagning hálendis og langtímavöktun

Í framhaldinu verði ráðist í kortlagningu hálendisins. Landfræðileg upplausn og 
nákvæmni kortanna taki mið af aðstæðum, fyrirliggjandi gögnum og þörfum notenda.

Jafnframt verði komið á fót varanlegu vöktunarneti, meðal annars að skoskri fyrirmynd,
þar sem jarðvegur er rannsakaður reglulega á föstum mælistöðum. Þannig verði hægt
að fylgjast með langtímabreytingum á eiginleikum jarðvegs, kolefnisforða, jarðvegsrofi
og ástandi jarðvegs.

Markmiðið er að byggja upp samræmdan og áreiðanlegan gagnagrunn um jarðveg Íslands
sem nýtist við rannsóknir, skipulag og landnýtingu, náttúruvernd og loftslagsbókhald.

## Samantekt

Samanburður við önnur lönd og fyrirliggjandi aðferðir og tækni styðja þá tillögu
að hefja stafræna jarðvegskortlagningu á Íslandi. Stöðluð jarðvegssýnataka og vandaðar
vettvangsmælingar yrðu undirstaða kortlagningar, en fyrirliggjandi landupplýsingar
og vélnámslíkön svo nýtt til að áætla jarðvegseiginleika á stærri svæðum.

Næsta skref væri afmarkað tilraunaverkefni á völdum vatnasviðum, þar sem metin yrði
þörf fyrir sýnatöku, kostnað við kortlagningu og hvaða landfræðilegu upplausn (e.
spatial resolution) gögn og aðferðir styðja. Jafnframt yrði lagt mat á nákvæmni 
og áreiðanleika niðurstaðna áður en ráðist yrði í umfangsmeiri kortlagningu.

## Myndbönd

[[

**The Soil and Landscape Grid of Australia – CSIRO.** Introduces Australia's nationwide
digital soil mapping and how soil measurements, spatial data and predictive models
are used together.

[[

**Digital Soil Mapping – FAO.** An introduction to digital soil mapping, its main
methods and how the results are used.

[[

**Module 1: Introduction to Digital Soil Mapping – FAO.** Covers the basics of digital
soil mapping and how soil measurements relate to spatial covariates.

[[

**Basic Hydrologic Analysis in ArcGIS Pro – Jenness Enterprises.** Explains how 
elevation models are used to calculate flow direction, flow accumulation, watersheds
and the topographic wetness index (TWI).

[[

**Hydrology in ArcGIS Pro, Lab Exercise 5: Generating an Accurate Watershed – Jenness
Enterprises.** Shows how watersheds are delineated from an elevation model and flow
paths.

[[

**How to Create Topographic Wetness Index (TWI) in ArcGIS Pro – NGEOSPATIAL SOLUTION.**
A hands-on tutorial on calculating the topographic wetness index from an elevation
model, slope and flow accumulation.

 * Source data
 * Derived data
 * Operation
 * Result
 * New samples return
 * Has a figure

Choose any box to see what it is, what it reads, what it feeds and which tools or
sources apply.

 Rounded boxes are data and square boxes are operations. Catchments frame the flow
calculation and the cross-validation; the model itself is fitted once for the whole
country.

## Explanatory figures

Kortið er að hlaðast…

Kveikja þarf á JavaScript til að sjá kortið.

## Orðalisti

Stafræn jarðvegskortagerð (DSM – Digital Soil Mapping):Aðferðafræði þar sem niðurstöður
jarðvegssýna eru tengdar við landupplýsingar og tölfræði- eða vélnámslíkön notuð
til að spá fyrir um eiginleika jarðvegs ásamt óvissumati.

Skýribreyta (Covariate):Landfræðileg breyta (t.d. landhalli, bleytustuðull, úrkoma,
gróður eða berggrunnur) sem notuð er í líkani til að skýra og spá fyrir um eiginleika
jarðvegs.

Spálíkan (Predictive model):Tölfræði- eða vélnámslíkan sem greinir tengsl milli 
mældra jarðvegseiginleika og skýribreyta.

Random Forest:Vélnám sem sameinar niðurstöður frá mörgum ákvörðunarvörðum til að
ná fram nákvæmari og stöðugri spá.

Quantile Regression Forest:Útfærsla á Random Forest sem metur ekki aðeins meðalgildi
spár heldur alla dreifinguna, sem gerir kleift að reikna spábil (t.d. 90% öryggisbil)
og meta óvissu í hverri myndeiningu.

Ákvörðunarvarða (Decision tree):Tillaga að íslensku heiti; vísar veginn að niðurstöðu
líkt og varða í landslagi.

Area of Applicability (AOA) og applicability mask:Afmarkar hvar umhverfisskilyrði
á kortasvæði eru sambærileg við þjálfunargögn líkansins og hvar líkanið teygir sig
út fyrir þekkt mörk.

Rastagögn og myndeining (Raster / pixel):Stafræn landupplýsingagögn sem sett eru
fram í reglulegu neti ferhyrndra myndeininga.

Landfræðileg upplausn (Spatial resolution):Stærð hverrar myndeiningar á jörðu niðri,
t.d. 20 × 20 metrar.

Mælikvarði (Map scale):Hlutfall milli fjarlægðar á korti og raunverulegrar fjarlægðar
í landi (t.d. 1:50.000).

Pedotransfer function (PTF):Stærðfræðilegt spáfall sem áætlar eiginleika jarðvegs
sem dýrt er að mæla beint (t.d. vatnsheldni) út frá einfaldari mælingum.

Bleytustuðull (Topographic Wetness Index, TWI):Vísitala reiknuð út frá aðrennslissvæði
og landhalla sem lýsir hvar vatn safnast fyrir í landslaginu.

Vatnasvið (Catchment):Náttúrulegt landsvæði þar sem allt yfirborðsvatn rennur að
sama útfalli.

Landfræðileg krossprófun (Spatial cross-validation):Prófunaraðferð þar sem gögnum
er skipt í landfræðilega aðskildar einingar (t.d. heil vatnasvið) til að fá raunhæft
mat á spánákvæmni líkans á óþekktum svæðum.

## Heimildir

Adhikari, K., Bou Kheir, R., Greve, M. B., Bøcher, P. K., Malone, B. P., Minasny,
B., McBratney, A. B., & Greve, M. H. (2013). [High-resolution 3-D mapping of soil texture in Denmark](https://doi.org/10.2136/sssaj2012.0275).
Soil Science Society of America Journal, 77(3), 860–876.

Aitkenhead, M. J., & Coull, M. C. (2016). [Mapping soil carbon stocks across Scotland using a neural network model](https://doi.org/10.1016/j.geoderma.2015.08.034).
Geoderma, 262, 187–198.

Aitkenhead, M. J., & Coull, M. C. (2020). [Mapping soil profile depth, bulk density and carbon stock in Scotland using remote sensing and spatial covariates](https://doi.org/10.1111/ejss.12916).
European Journal of Soil Science, 71(4), 553–567.

Cavazzi, S., Corstanje, R., Mayr, T., Hannam, J., & Fealy, R. (2013). [Are fine resolution digital elevation models always the best choice in digital soil mapping?](https://doi.org/10.1016/j.geoderma.2012.11.020).
Geoderma, 195–196, 111–121.

Geological Survey of Denmark and Greenland (GEUS). (n.d.). [Geologisk jordartskortlægning af Danmark](https://www.geus.dk/natur-og-klima/land/geologisk-kortlaegning-af-danmark).

Grundy, M. J., et al. (2015). [Soil and landscape grid of Australia](https://doi.org/10.1071/SR15191).
Soil Research, 53(8), 835–844.

Hengl, T. (2006). [Finding the right pixel size](https://doi.org/10.1016/j.cageo.2005.11.008).
Computers & Geosciences, 32(9), 1283–1298.

Lilburne, L. R., et al. (2012). [Soil and informatics science combine to develop S-map: A new generation soil information system for New Zealand](https://doi.org/10.1016/j.geoderma.2011.11.012).
Geoderma, 170, 232–238.

Lilly, A., Bell, J. S., Hudson, G., Nolan, A. J., & Towers, W. (2010). [National soil inventory of Scotland (NSIS_1): Site location, sampling and profile description protocols (1978–1988)](https://soils.environment.gov.scot/maps/point-data/national-soil-inventory-of-scotland-nsis-1978-88/).
Macaulay Institute.

Malone, B. P., Searle, R., Stenson, M., McJannet, D., Zund, P., Román Dobarco, M.,
Wadoux, A. M. J.-C., Minasny, B., McBratney, A., & Grundy, M. (2025). [Update and expansion of the soil and landscape grid of Australia](https://doi.org/10.1016/j.geoderma.2025.117226).
Geoderma, 455, 117226.

Manaaki Whenua – Landcare Research. (2024). [Major update to S-map Online released](https://soils.landcareresearch.co.nz/news/major-update-to-s-map-online-released).

Manaaki Whenua – Landcare Research. (2025). [Broadening our horizons: S-map coverage expands again](https://soils.landcareresearch.co.nz/news/s-map-coverage-expands-again).

New Zealand Soils Portal. (2026). [S-map updates across Aotearoa for 2026](https://soils.landcareresearch.co.nz/news/s-map-update-2026).

Manaaki Whenua – Landcare Research. (n.d.). [S-map Online: Release notes](https://smap.landcareresearch.co.nz/support/release-notes).

McBratney, A. B., Mendonça Santos, M. L., & Minasny, B. (2003). [On digital soil mapping](https://doi.org/10.1016/S0016-7061(03)00223-4).
Geoderma, 117(1–2), 3–52.

Møller, A. B., Nyborg, L., Grogan, K., Druce, D., Svane, S. F., Greve, M. B., Gutierrez,
S., Styczen, M., Greve, M. H., Knudsen, L., & Beucher, A. (2025). [High-resolution 3D soil texture mapping in Denmark using satellite time series and bare soil composites](https://doi.org/10.1016/bs.agron.2025.07.001).
Advances in Agronomy, 194, 133–186.

Poggio, L., & Gimona, A. (2014). [National scale 3D modelling of soil organic carbon stocks with uncertainty propagation—An example from Scotland](https://doi.org/10.1016/j.geoderma.2014.05.004).
Geoderma, 232–234, 284–299.

Roberts, D. R., et al. (2017). [Cross-validation strategies for data with temporal, spatial, hierarchical, or phylogenetic structure](https://doi.org/10.1111/ecog.02881).
Ecography, 40(8), 913–929.

Scotland’s Soils. (n.d.). [National soil map of Scotland](https://soils.environment.gov.scot/maps/soil-maps/national-soil-map-of-scotland/).

Scotland’s Soils. (n.d.). [National Soil Inventory of Scotland (NSIS 1978–88)](https://soils.environment.gov.scot/maps/point-data/national-soil-inventory-of-scotland-nsis-1978-88/).

Searle, R. (2021). [Australian Soil Classification Map](https://portal.tern.org.au/metadata/15728dba-b49c-4da5-9073-13d8abe67d7c)[
Data set]. Terrestrial Ecosystem Research Network.

Soil Survey of Scotland Staff. (1981). [National Soil Map of Scotland (Version 1.4)](https://doi.org/10.5281/zenodo.4646891)[
Data set]. Zenodo.
